|
|
| |
| | Þessi könnun er ekki lengur í gildi | | |  |  | | | | | | |
|
|
|
Fallegur foli - 2010-09-07
Garpur frá Vallanesi, fæddur 2006, undan 1. verðlauna stóðhestinum Sindra frá Vallanesi (IS2002157570) og Kolbrá frá Vallanesi (IS1993257578). Hann er rauðskjóttur, meðalstór, reistur og framfallegur. Hreyfingafallegur klárhestur. Bandvanur. Garpur er staðsettur á Akureyri. Upplýsingar gefur Árni í síma 8985587. |
1 prize mare for sale - 2010-09-07
Lyfting frá Ásgeirsbrekku er 1 verðlauna meri undan gæðingnum Kveik frá Miðsitju og Stygg frá Svaðastöðum. Hún hefur hlotið 8.10 í aðaleinkunn, 8.24 fyrir hæfileika, en hún er með 8 á línuna og svo 8.5 fyrir brokk, skeið og vilja og geðslag. Svo er hún er með 7.88 fyrir byggingu, þ.á.m. 8.5 fyrir hófa og háls, herðar og bóga. Lyfting er til sölu ásamt hestfolaldi undan Þóroddi frá Þóroddsstöðum (8.74) og einnig ásamt fyli undan Eldjárn frá Tjaldhólum (8.55). Fleiri upplýsingar á emailinu smaratun@gmail.com eða í síma 8419697 eða 8696888 |
hestur til sölu - 2010-09-05 er með móoltan hest til sölu hann er frá lindartúni og er fæddur 2oo4 hann er mikil töldari og verður kepnishestur því hann hevur mikinn fóta búrð. |
4 hestar til sölu - 2010-09-01 14 vetra brúnann klár - taumléttur og góður ferðahestur. Viljugur 14 vetra rauðbrún meri - mjög ganggóð og þæg, Viljug 18 vetra brúnann klár - mjúkur og góður ferðahestur 18 vetra gráann klár - góður töltari. Nánari uppl. í síma 664-3131 |
2vetra meri - 2010-08-30 IS2008256888 Sókn frá Njálsstöðum F: IS2006156888 Skutull frá Njálssröðum FF: IS1990188176 Hrynjandi frá Hrepphólum FM: IS1998256886 Skuttla frá Njálsstöðum M: IS1998256887 Ferming frá Njálsstöðum MF: IS1995184680 Sölvi frá Forsæti MM: IS1981256782 Braga-Blesa frá Breiðavaði 2vetra rauð faleg meri. Bæði með tölt og brokk. Hún er ljúf og góð. Var inni sem folald og er því vön að vera bundinn. verð 100þúð eða tilboð kv Signý signyb@visir.is 866-3482 |
29 hross til sölu á öllum stigum - 2010-08-22 Til sölu 29 hross í mörgum gerðum, mörg mjög efnileg með mikinn fótaburð, önnur þæg, auðveld og mörg ung og efnileg : 2 fullorðnir stóðhesta 4 efni í keppnishross 6 mjög góð reiðhross 1 kynbótahryssa 1 4 vetra efnileg hryssa 2 geldingar 1 og 2 vetra 10 hestfolöld ( Mjög vel ættaðir, fallegir og mikil efni, hinsvegar mjög litfagrir og fallegir ) 3 merfolöld ( Efnileg ) Get sent myndir og upplýsingar einnig er hægt að koma og skoða. Áhugasamir hafið samband í síma : 8455829 eða á sigurg@krokur.is einnig er hægt að sjá video ef fólk vill af sumum hrossanna |
Raudvindottskjottur 6 vetra hestur til solu! - 2010-08-17
Raudvindottskjottur taegur hestur undan Blika fra kjalarlandi er til solu. Efnilegur fjoldskyldu og reidhestur hefur ekki skeid en hefur taegilegt tolt. Tilbod berist i email doppubrandur@hotmail.com eigandi er agusta loa |
Ræktunarhryssa til sölu - 2010-08-17 Gullfalleg hryssa til sölu, Stelpa frá Skáney, faðir er Srákur frá Skáney FF. Piltur frá Sperli, Móðir er Hera frá Skáney, MM Gerður frá Skáney. Stelpa er 10 vetra, rauðblesótt að lit, gott tölt, há fótlyfta og mikill fótaburður. Stelpa er fylfull við Mídas frá Kaldbak, einn sá flottasti í dag. |
Veturgamall ógeldur Elífur frá N-Hvoli. - 2010-08-16
IS2009185669 Eilífur frá Norður-Hvoli er veturgamall grár ógeldur foli undan Þóroddssyni Berki frá Skjálg og Glóð frá Norður-Hvoli. Flottur hestur með fallegar hreyfingar. Eilífur var fæddur alveg svartur og verður með tímanum alveg grár. Hann var settur á sem fallegt merfolald en svo kom í ljós að það var hestur. Þess vegna verður hann að fara. Staðsettur á Norðu-Hvoli í Mýrdal fæst á sanngjörnu verði. Tilboð óskast. Frekari upplýsingar á n-hvoll@simnet.is |
2 vetra skjottur hestur til solu - 2010-08-11 2 vetra raudskjottur hestur undan Tengli fra laugaboli. Gedgodur og fallegur og lofar godu. ER stadsettur i Skagafirdi og heitir Orias fra Haleggsstodum. Haegt er ad gera tilbod i emaili doppubrandur@hotmail.com Eigandi Agusta Loa |
Glæsilegur hestur undan Toppi - 2010-08-09
Stór og glæsilegur brúnn hestur sjö vetra undan Toppi frá Eyjólfsstöðum. Þægur, traustur og öruggur. Fjölskylduhestur. Allar upplýsingar veitir galtardalur@hotmail.com |
Móálótt skjótt meri til sölu - 2010-07-30 Móálótt skjótt meri til sölu fædd 2001. F. Sleipnir frá Garðabæ FF. Orri frá Þúfu FM. Buska frá Garðabæ M. Bleikála frá Syðri-Úlfsstöðum MF. Höttur frá Syðri-Úlfsstöðum MM. Hrönn frá Syðri-Úlfsstöðum Hún er mjög þægileg í umgengni og auðveld í járningu. Skemmtilegt hross fyrir vana. Er mjúk á öllum gangi og mjúk í beisli. Hefur meðalvilja. Hún hefur verið í haga í ár núna þannig að hún er í engu formi, en það hefur almennt verið fljótt að koma hjá henni. Hún er til sölu vegna tíma- og peningaleysis. Merin er stödd í haga í hvalfirðinum. Get útvegað myndir af henni og farið með fólk að skoða ef óskað er eftir því. Frekari upplýsingar á hildurgyda@gmail.co |
Flottur hestur til sölu! - 2010-07-08
Stór og flottur fjórgangshestur til sölu. Hann hentar einungis þolinmóðum og ákveðnum knapa. Hef verið að keppa á honum með góðum árangri en þessi hestur var taminn 6 vetra og á þess vegna mikið inni. Hann getur verið svolítið lítill í sér en hefur alfrei sýnt neina illsku. Hann er mjög ljúfur og góður í allri umgengni Big and beautiful four gaited horse for sale. He works best for patient and certain rider. I've been competing on him with good performancre, but that horse was trained 6 year old and therefore he got much inside. He may have a small heart, but has never shown any evil. He is very sweet and good in all treatment F: Þór frá Höskuldsstöðum M: Blesa frá Stokkhólma Berglind Ösp (knapi): 8246416 Ívar (eigandi): 6922071 Meiri upplýsingar/more informations = beggaosp@hotmail.com |
Yndislegur Hestur til sölu - 2010-04-22 Hesturinn minn er til sölu 4 vetra, ótaminn bleikálóttur, nösóttur Er blíður, það er rétt svo byrjað að temja hann hefur prufað að hafa hnakk, það hefur prufað að fara á bak á honum inni í litlu gerði, hann er viljugur Get sent mynd |
Stór og myndarlegur reiðhestur til sölu - 2010-03-26
Skúffi frá Skeggjastöðum er stór og myndarlegur hestur. Hann er lítið gerður en þægur. Hann er vel reiðfær og er með allan gang. Hann er frekar skeiðlaginn en tekur hreint og fínt tölt inn á milli, hann þarf meiri þjálfun svo töltið verði betra. Hann brokkar ágætlega, stekkur og fetar vel. Hann er undan fyrstu verðlauna hestinum Geysi frá Sigtúni og Flugu frá Reykjavík. Skúffi er staðsettur í höfuðborginni og því auðvelt að koma og skoða hann, einnig eru fleiri myndir og upplýsingar í söluskránni hjá hestaborg.is |
falleg meri - 2010-03-01
Hekla frá Fyrirbarði IS2006258062 , dökkjörp nósótt að lit ótaminn 5 gangs Tilboð |
Tvær gullfallegar merar - 2010-02-18 Er með tvær merar til sölu Von frá Reykjavík IS2004225269 Rauð á 6 vetri Nótt frá Reykjavík IS2005225444 Brún á 5 vetri Þær eru staðsettar í Fjarborg og hægt er að hafa samband og fá að skoða þær og prufa.. Þær voru báðar að koma úr tamningu frá Hallkelsstaðahlíð. Þær eru einungis fyrir vana |
Frábær klárhestur til sölu - 2010-02-17 Hann Gói er 10 vetra klárhestur með yndislega skapgerð, traustur en viljugur hentar í raun hverjum sem er. Vegna breyta aðstæðna neyðist ég til að selja hann. Var metinn á 450,000 þúsund en fer á e-hvað minna fyrstur kemur fyrstur fær. |
5vetra meri - 2010-02-13
Falleg meri til sölu 2 mánaða taminn fæst á 90 þúsund smá skap í henni fyrst á stað er á Norðurlandi |
Til sölu - 2010-02-08 von frá fyrirbarði IS2005258063 rauð f.Rökkvi frá hárlauksstöðum m.pálna frá gili falleg meri |
Glæsilegt og spakt folald. - 2010-02-01
Til sölu er spakt og glæsilega vel byggt folald. Búið er að skrá folaldið á www.worldfengur.com. Getum útvegað hesthúspláss og framtíðar hagagöngu. |
hestaborg.is - 2010-01-31
Vorum að bæta við nýjum hestum á söluskránna hjá okkur. Endilega kíkið á heimasíðuna okkar hestaborg.is |
5 vetra meri - 2010-01-13 5 gangs hryssa 2 mánaða rauðstjörnótt smá hnútur í henni af stað fæst fyrir lítið Tilboð |
Efnilegur reiðhestur - 2010-01-13 Til sölu er reiðhesturinn Óður f. Ytri-Sólheimum 2. Óður er 5 vetra rauðglófextur stjörnóttur, hann er fjögra mánaða taminn og lofar góðu, ganggóður og viljugur en aðeins ör. |
Efnilegt merfolald !!!!!! - 2009-12-13
Vel ættað og efnilegt leirljóst merfolald undan Blæ frá Hesti ( 8,69 fyrir hæfileika, 8,21 fyrir byggingu og varð í 2 sæti á fjórðungsmóti Vesturlands 09 með 8,54) og Stygg frá Svaðastöðum. Áhugasamir endilega hafið samband í S: 8997486 eða sigurg@krokur.is. Myndin er af föðurnum. |
Kolkuósfolald - 2009-11-24 Brúnskjótt Merfolald til sölu Faðir IS2001138335 Sokki Köldukinn. F.F. IS1981157001 Sokki Kolkuósi. F.M. IS1975258987 Svört Kolkuósi Móðir IS2000238494 Hrafnhetta Lækjarskógi . Verð 100.000- eða tilboð |
Folald til sölu - 2009-11-17 Rauðstjörnótt hestfolald undan Smára frá Skagaströnd. |
hestaborg.is - 2009-10-17
Erum með nokkrar hryssur inni til sölu. Erum á höfuðborgarsvæðinu svo auðvelt er að koma og skoða. Kíktu á úrvalið á hestaborg.is |
Dana frá Grund til sölu - 2009-09-22
Dana frá Grund er 7vetra alhliðahryssa og mjúk bæði á tölti og brokki. F:Hugi f. Hafsteinsstöðum M: Bylgja f. Hafsteinsstöðum. Skemmtilegt reið- og ferðahross. Er stödd á norðurlandi og nánari upplýsingar gefur Anna Kristín í S:8677635 |
Pottþéttur fjölskylduhestur - 2009-09-22 Hér er ég með til sölu pottþéttan hest handa öllum í fjölskyldunni. Sprenglærður og ljúfur í umgengni. Frábær töltari og gangskipti eru mjög góð Þarf að selja hann vegna flutninga út svo að hann fer á því flotta verði 350 þús Er staðsettur á Neskaupstað Kv. Hafrún 847-7998 |
Ræktunarhryssa til sölu - 2009-09-10 Hryssan Kolskör frá Vindási er til sölu. Kolskör er 6v brún að lit. Dómur 2009 Sköpulag 7.85 hæfileikar 7.88 þar af 8.5 fyrir tölt. Faðir er Freyr frá Holtsmúla 1.v hestur undan Orra frá Þúfu og Freyju frá Glæsibæ. Móðir er Gleði frá Vindási með góð 2.v. (7.86) Faðir Angi frá Laugarvatni (heiðursverðlaun fyrir afkvæmi) móðir Fjöður frá Hnjúki (1v. fyrir afkvæmi). Kolskör er fylfull við Kiljan frá Steinnesi sem er 1v. hestur með 8.84 fyrir hæfileika. Verð: 1.500.000 kr. |
Folöld til sölu. - 2009-07-14
Til sölu folöld undan Álfasteinssyni IS2005182718.Frey frá Selfossi og undan IS2006166792 Hamri frá Stórulaugum. Verð frá 45,000 og upp-í 200,000 |
10 vetra hestur til sölu - 2009-07-13
Garpur frá Akrakoti er til sölu. Hentar vel í keppni fyrir vön börn og unglinga. Er líka úrvals reiðhestur. Hefur góðan gang og er duglegur. Hefur lokið 4 stigum í Knapamerkinu. Verðhugmynd 550þús krónur |
Tvö hross til sölu - 2009-07-08 Efnileg hryssa undan Sæla frá Holtsmúla og Jódís frá Enni,hestur undan Ylon frá Holtsmúla. Frekari upplýsingar í síma,8646821. |
Meri til sölu - 2009-04-23 Til sölu er hún Ósk frá Búlandi, klárhryssa er fín í umgegni töltir fínt, brún á lit.uppl. 6176745 |
Gullfallegur foli - 2009-04-08
sokki frá svanavatni er 3 vetra ógeldur móvindóttur sokkóttur. Aðeins byrjað að vinna i tamningu lofar góðu mikill karekter og þægilegur í umgengni. óska eftir tilboði upplýsingar í síma 6948498 |
***Moldóttur hestur*** - 2009-04-06 Erum með moldóttan hest il sölu. Hann er 12 vetra, duglegur og sterkur fínn ferðahestur. Hann er ekki með hreinan gang enda lítið brúkaður í gegnum tíðina svo það er líklega bara þjálfunaratriði.Hann er mjúkur en getur verið með smá stæla ef hann er látinn standa/bíða of lengi eftir að komið er í hnakkinn. Þokkalega viljugur. |
Töltari - 2009-03-31 til sölu 7.vetra hestur undan Sæ frá Bakkakoti góður töltari, rúmur og skemmtilegur hestur. einnig á sama stað til sölu hnakkur mög vel með farinn. uppl. í síma 843-5362 |
Tveir gulfallegir folar - 2009-03-19 Tveir folar 6 og 7 vetra i vor. Get tekið bil,haglabissu,rifil.Verð 350 þ saman |
6.vetra hestur - 2009-03-04 Til sölu 6.vetra (7.v í vor) brúnn hestur æðislegur hestur hreingengur og rúmur töltari þægur og góður. uppl.síma 8435362 |
Nýuppfærð heimasíða - 2008-09-02 Vorum að uppfæra síðuna www.kviholmi.blogspot.com Til sölu eru meðal annars: Fallega lit og vel ættuð tryppi Viljug og þæg allhliða hryssa með mjög gott skeið Stór og fallegur fjórgangshestur Alþægur góður klárhestur með góð gangskil og töluverðan fótaburð Fallegar og þægar hryssur með góðan fótaburð og margt fleira. Nánari lýsingar og myndir á www.kviholmi.blogspot.com |
Til baka |
|
| Meira & minna |
|

| Þyrill frá Vatnsleysu og Vignir Siggeirsson sigruðu í B-flokki gæðinga á fjórðungsmótinu á Vindheimamelum 1993. Þyrill var þá aðeins sex vetra gamall og kom, sá og sigraði. Vignir og Þyrill áttu síðan eftir að gera það gott saman og urðu m.a. heimsmeistarar í tölti í Noregi 1997 |
|
 |
|