International | Hafa samband      Leita 



  Forsíða   |   Krakka- og unglingavefur   |   Kveðskapur   |   Landbúnaðarfréttir  
 
Hólaskóli

Þessi könnun er ekki lengur í gildi

Flugumýri
LUWEX
 
Gallaður hestur eða gallað prógramm?
Höfundur: Linda Karen
lindakaren@847.is

Hestamennskan er endalaus lærdómur. Fræðin eru svo víðfem að maður getur aldrei kallast útskrifaður. Að læra góð samskipti við hestinn er yfirleitt erfiðast enda mætast tveir ólíkir hugarheimar sem þurfa að vera takt við hvorn annan. Mér langar að deila með ykkur reynslu minni af eigin hesti sem ég átti í miklum samskiptavanda með en hann var  bæði  kargur og erfiður í reið. Aðalvandamál mitt  var að í fávisku minni tók ég hegðun hestsins persónulega og taldi að hann væri vísvitandi að hefna sín á mér.



Svarti sauðurinn
Hesturinn Heimir, eða letihaugurinn eins og hann var kallaður, var seldur með skömm að vorlagi af ræktanda sínum til áhugakonu í Reykjavík. Konan sú setti hann á sölu um haustið og ég skoðaði gripinn þar sem hann var staddur í hagagöngu. Þegar ég kom gekk þessi líka sláandi fallegi rauðblesótti foli á móti mér. Hesturinn hreyfði sig af góðum þokka og var vægast sagt vel ættaður, undan Kraflari frá Miðsitju og Vordísi frá Sandhólaferju. Hann var síðasta afkvæmi þessarar gæðingamóður sem gaf m.a. gæðinga eins og Adam og Eydísi frá Meðalfelli. Ég ákvað að slá til. Heimir var rétt reiðfær, full rólegur kannski en algert gæðablóð. Þegar að tamningunni kom fór hann að sýna mikinn mótþróa á ákveðnum vegaköflum, mér til mikillar armæðu og óþolinmæði. Skuldinni var skellt á hestinn og taldi ég hann meingallaðan í skapinu og örverpi foreldra sinna. En það er ekki til gallaður hestur, bara gallað prógramm. Mínar þjálfunaraðferðir voru handahófskenndar og stjórnuðust oftar en ekki af skapferli mínu þann daginn. Stundum var ég þolinmóð en aðra daga skammaðist ég mikið í hestinum sem vissi aldrei hvar hann hefði mig. Hann var bæði hræddur og reiður undir mótþróanum þótt hann sýndi sjaldan hræðsluna vegna stolts. Þess vegna varð hesturinn kargari með hverjum deginum sem leið og allan tímann taldi ég að hann væri vísvitandi að láta illa. Ég var komin í vítahring vegna eigin fáfræði.


Kergjan uppljómun

Það sem mig grunaði ekki var að hesturinn stjórnast ávallt af umhverfi sínu og því áreiti birtist þar. Hesturinn tengir einnig saman umhverfi og aðstæður við þær jákvæðu eða neikvæðu upplifanir sem þar gerðust. Vegna minninga um óréttlátar refsingar sýndi Heimir kergju á ákveðnum stöðum/umhverfi sem vöktu upp hjá honum reiði eða ótta. Hesturinn kom aldrei með neitt ígrundað útspil gagnvart mér eins og ég hélt, heldur svaraði hann umhverfinu eins og hann upplifði það. Þessi nýja vitneskja var mér mikil uppljómum og þakka ég henni fagmönnum eins og Benedikt Líndal, Hólaskóla og Sigurbirni Bárðarsyni þótt þeir hafi aldrei sagt mér hlutina í eigin persónu heldur í gegnum kennsluefni. Ég nýtti mér bæði bækur og myndbönd og fór á nokkra fyrirlestra sem opnuðu hug minn til að sjá og takast á við vandamálið. Mína eigin þjálfunaraðferð.



Hunsaði ranga hegðun

Ég ákvað að taka ábyrgð á gjörðum mínum og hætta að gera hestinn ábyrgan. Knapinn er alltaf sá sem er með tauminn og þessi mótþrói var öll mín sök. Hesturinn er óskrifað blað þar til tamning hefst og hann veit ekki hvað manninum finnst óæskileg eða æskileg hegðun. Það lærir hann ekki fyrr en hegðun hans er örvuð með hrósi eða minnkuð með refsingu. Ég sá að ég kunni alls ekki með refsingar að fara og að þær hentuðu alls ekki minni hestamennsku. Ég ákvað því að hunsa alla ranga hegðun og hætta þar með alveg að refsa. Þegar hesturinn sýndi mótþróa á reiðvegunum eða fyrir framan hesthúsið hætti ég að biðja hann um að halda áfram, hætti að rífast og skammast. Hinsvegar setti ég hann strax í annað verkefni eins og stöðvun eða kyssa ístöð. Fyrir það fékk hesturinn hrós og gjarna matarverðlaun sem hann fékk aldrei við annað tilefni. Ég svo bað ég hestinn vingjarnlega um að fara áfram. Í flestum tilvikum svaraði hann jákvætt um leið. Ef hann svaraði ekki strax rétt hélt ég áfram í öðrum smáverkefnum í rólegheitunum þar til hann var tilbúinn til að leyfa mér að koma með sér í reiðtúr. Ég fór að uppræta minn eigin vítahring. Ég gaf sjaldan og lítið í einu af matarverðlaunum og í millitíðinni hrósaði ég með rödd eða stoku yfir bóg. Það gerði það af verkum að matarverðlaunin urðu eftirsóknarverðari. Hefði ég gefið of mikið hefðu þau á endanum hætt að vera hestinum sem verðlaun. Ég þurfti að gæta þess að sýna hestinum ávallt yfirvegaða kennarann sem aldrei missti stjórn á skapi sínu og var alltaf ánægður með frammistöðu hans. Stöðugleikinn gaf hestinum öryggiskennd og brátt fór jákvæðni að láta á sér kræla.

 


Ótæmandi gleði og verkvilji


Í hverjum reiðtúr bætti hesturinn sig sjálfviljugur og á endanum datt honum ekki til hugar að beygja þar sem honum sýndist eða standa fastur í sömu sporum. Öruggt og gott yfirferðartölt kom eins og hendi væri veifað en lengi hafði það verið vandamál. Auðvitað tengdist það allt saman því að ég hafði látið hann erfiða of mikið á tölti fyrir ekki neitt í staðinn. Vinir mínir voru gáttaðir á ótæmandi gleðinni og verkviljanum í hestinum sem þeir áður þekktu sem kargan og latan. Það að ég einbeitti mér eingöngu að jákvæðu hegðuninni í stað þeirrar neikvæðu áður fékk hestinn til að vilja gera það sem ég vildi að hann gerði. Þar með var tilgangi tamningarinnar náð, að hestur og maður ferðast saman í fullkomnum samhljómi við hvorn annan. Tveir ólíkir hugir verða eitt. Það er alveg ótrúlegt hvað Heimir hefur breyst mikið á þeim vetri sem ég ákvað að taka á málunum. Úr körgum letingja í frískan og léttleikandi gæðing.



Samskipti manns og hests eru sannarlega margslungin og vafalaust eiga fleiri samskiptavandamál eftir að angra okkur Heimi í framtíðinni. Gleymum ekki að leita okkur hjálpar hjá fagmönnum ef við erum í vanda áður en í óefni er komið. Hefði ég haldið áfram á sömu neikvæðu brautinni með hestinn hefði hann á endanum orðið hrekkkjóttur. Látum ekki samskiptaörðugleikana verða að stærra vandamáli en þau eru og munum að vandamálin eru ekki óyfirstíganleg, heldur skemmtileg áskorun til að læra af.

(Þessi grein birtist fyrst í tímaritinu Hestar árið 2005)


Eldri pistlar:
2006-03-22 Taumstífni - Linda Karen
2006-03-09 Þeir verja vitið sem hafa það - Linda Karen
2005-11-08 Gustar af Gusturum - Una María Óskarsdóttir
2005-10-21 Hestamaður í gleði og sorg - Vigfús Björnsson
2005-09-29 Opið bréf til Hr. Guðna Ágústssonar - Daníel Ben Þorgeirsson
2005-09-28 Sviptingar hjá hestamiðlum og hófapressu - Daníel Ben Þorgeirsson
2005-09-27 "Þeir riðu í réttirnar..." - Gísli Sigurðsson
2004-12-22 Æsifréttamennska að hætti DV - Jón B Lorange
2004-12-19 Ekki allt sem sýnist í skýrslu Umboðsman - Herbert Ólason (Kóki)
2004-11-05 Graðfolar, berar konur og reiðbuxur - Daníel Ben Þorgeirsson
2004-10-21 Loksins kom frétt frá Umbanum. - Daníel Ben Þorgeirsson
2004-06-25 Meðaltöl og Worldfengur - Jón Björnsson
2004-04-16 Skýringar með fornum reiðleiðum - Örn H. Bjarnason
2004-04-12 Síðasta ferð Jóns biskups Vídalín - Örn H. Bjarnason
2004-04-09 Stardalsleið á Þingvöll - Örn H. Bjarnason
2003-12-29 Leið Illuga frá Hólmi að Ölfusvatni - Örn H. Bjarnason
2003-11-21 Ein leið. - Björn Ólafsson
2003-11-13 Atlaskort á geisladiski - Örn H. Bjarnason
2003-10-31 TGIHF - Björn Ólafsson
2003-10-28 Landmælingar Íslands taka heljarstökk - Eftir Örn H. Bjarnason
2003-10-20 Stefnuför Grímkels goða árið 951 - Örn H. Bjarnason
2003-10-06 Grettir stelur Söðulkollu - Örn H. Bjarnason
2003-09-10 Aðför Þorgils skarða í Reykholt - Örn H. Bjarnason
2003-08-05 Apavatnsför árið 1238 - Örn H. Bjarnason
2003-07-25 Leiðin um Dráttarhlíð - Örn H. Bjarnason
2003-07-17 Klettsgata - Örn H. Bjarnason
2003-07-07 Síldarmannagötur - Örn H. Bjarnason
2003-07-01 Um Langavatnsmúla. - Örn H. Bjarnason
2003-06-24 Hálsagötur - Örn H. Bjarnason
2003-05-26 Ferðir Þórðar kakala 1242-1243 - Örn H. Bjarnason
2003-04-22 Leiðin um Sópandaskarð - Örn H. Bjarnason
2003-04-16 Hestatímarit og netmiðlar - Daniel Ben Þorgeirsson
2003-04-04 Hvernig skal hemja ótamda fola - Daniel Ben Þorgeirsson
2003-03-31 Að hrasa styrkir mann ! - Daniel Ben Þorgeirsson
2003-03-18 Stardalsleið á Þingvöll - Örn H. Bjarnason
2003-02-17 Gamlar götur-Reynisvatnshringur um Óskot - Örn H. Bjarnason
2003-02-06 SVONA ER LANDINN - Sæmundur T H
2003-01-02 Þar sem sprengjurnar féllu - Örn H. Bjarnason
2002-12-04 Gamlar götur-Selkotsvegur - Örn H. Bjarnason
2002-05-10 Gamlar götur í Rangárvallasýslu - Örn H. Bjarnason
2002-03-27 Nei Takk kærlega ! - Daniel Ben Þorgeirsson
2002-03-22 Konungskoman árið 1907 - Örn H. Bjarnason
2002-02-16 Gamlar götur í Dalasýslu - Örn H. Bjarnason
2002-02-08 Gamlar götur-Vestur-Húnavatnssýsla - Örn H. Bjarnason
2002-02-01 Áfram Léttir og Funi eða Eyfirðingur? - Þorsteinn Egilson
2002-01-25 Gamlar götur -Árnessýsla - Örn H. Bjarnason
2002-01-18 Úr Kvosinni í Hvalfjarðarborn. - Örn H. Bjarnason
2002-01-11 Undirvagninn - Þorsteinn Egilsson
2001-12-12 Um gamlar götur - Örn H. Bjarnason
2001-11-30 Bentu á þann sem að þér þykir bestur - Valur Ásmundsson
2001-11-19 Reiðhöll óskast, gefins eða fyrir lítið - Valur Ásmundsson
2001-11-12 Salerni og góðar stíur - Valur Ásmundsson
2001-11-05 Mótadjók - Valur
2001-10-26 Um gamlar götur við Elliðaár - Örn H. Bjarnason
2001-10-19 Tamning - Valur
2001-10-08 Haltu í litla karlinn ... - Valur
2001-10-01 Betra er að vera klaka klár - Valur, Akureyri 30.09.2001
2001-09-18 Fágun gegn grodda - Valur
2001-07-30 Um gamlar götur - Örn H. Bjarnason
2001-07-10 Af fjórðungsmóti - Sæmundur T. Halldórsson
2001-06-14 Ferðalög - Valur Ásmundsson Akureyri
2001-06-05 Sviftingar í þáttargerð - Valur Ásmundsson Akureyri
2001-05-28 Norðrið ljúfa - Valur, Akureyri 28. maí 2001
2001-05-11 Þankar að vori - Valur Ásmundsson
2001-04-19 847 sækir enn í sig veðrið. - Daniel Ben Þorgeirsson
2001-03-25 SÆLIR LESENDUR Á 847. - Sæmundur T Halldórsson.
2001-03-01 STOFURÆKTANDINN - Sveinn M. Sveinsson
2001-02-18 Er Íslenski hesturinn tæknibrella? - Sæmundur T. Halldórsson
2001-01-28 Rannsóknir og vísindi - Þorsteinn Egilson
2001-01-23 Tískuhross. - Sæmundur T. Halldórsson
2001-01-15 LH myndbönd - Sæmundur T Halldórsson.
2001-01-09 Hrossarækt og Kynbótadómar - Sæmundur T. Halldórsson
2001-01-05 Af nýjungum og samkeppni... - Daniel Ben Þorgeirsson
2000-12-16 www.hestar847.is - Daniel Ben
2000-12-08 Kynning á pistli vikunnar - Daníel Ben Þorgeirsson
Meira & minna


Árið 1952 kom út merkileg fræðslubók á vegum LH, “Á fáki – kennslubók í hestamennsku”, eftir Gunnar Bjarnason og Boga Eggertsson. Útkoma þessarar bókar markaði tímamót og voru eldri hestamenn þeirrar tíðar ekki allir hrifnir af fræðsluefninu - töldu sig ekki þurfa að lesa sér til um það hvernig ríða ætti hesti. Bókin seldist mjög vel var endurútgefin 1966. Nú er þessi bók ófáanleg.


Stóðhestar



Dynur
frá Hvammi
Aðaleinkunn: 8,47

Smáauglýsing



Stór og myndarlegur reiðhestur til sölu
Skúffi frá Skeggjastöðum er stór og myndarlegur he ...

Höfundarréttur: © 2004-2005 847.is - allur réttur áskilinn.