Árið 1974 var farin póstferð að gömlum sið, norður á Vinheimamela á landsmót í tilefni 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar. Farið var með 45 hesta og var helmingurinn undir koffortum. Förinni stjórnaði sá kunni sómamaður úr hestamannafélaginu Herði, Kristján Þorgeirsson, sem oft er kallaður “Stjáni póstur”.