Bæjarkeppni Funa
haldin mánudagskvöldið 24. júní
12.06.2019 - 08:21 Bæjarkeppni Funa verður haldin mánudagskvöldið 24. júní á Melgerðismelum. Skráning hefst kl. 18:00 og mótið byrjar kl. 19:00. Öllum velkomið að skrá sig óháð félagaaðild, opin skráning í alla flokka.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum í þeirri röð sem þeir birtast.
• Pollaflokkur
• Barnaflokkur
• Unglingar
• Ungmenni
• Kvennaflokkur
• Karlaflokkur
Pylsur, gos ofl. verður til sölu á staðnum.
Allir velkomnir
Hestamannafélagið Funi
Athugasemdir